Hugarheimur los atlos

Most of us, most days, make no decisions that really matter!

31.12.2007 14:32:24 / losbiskit

Hættur!

Ég hef áveðið að hætta þessari síðu og flytja mig á þetta moggablogg! Sjá hvort það virki ekki betur á mig!

       atlividar.blog.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 19:18:24 / losbiskit

Engin ritskoðun hér..

Hver annar maður á Íslandi en Sverrir Stormsker, leyfir sér að skrifa svona og fá hrós fyrir það frá hommum og lesbíum? 

Því fer semsé víðsfjarri að ég hafi nokkuð á móti rassmussum og lessumussum. Sumir minna allra bestu vina eru eins þrælöfugir og hægt er að vera og það er bara hið allra besta mál. Allavega ekki mitt mál. Drullupumpur eru líka fólk. Maður á að bera virðingu fyrir saurþjöppum rétt einsog venjulegu fólki.

Sverrir er víst snilli... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 21:56:56 / losbiskit

Hidíhó...

Ég talaði um að verðlauna sjálfan mig fyrir að vera þurr í heilan mánuð. Ég hefði betur haft það eina helgi í viðbót.

Vitleysingurinn ég fór á rosalegt sukkerí með félögum mínum úr Drekunum og flaug á hausinn þegar ölæðið var sem mest. Var það í sigurvímu þeirra eftir gríðarspennandi Buzz leik að ég féll við, hlaupandi taphring í kringum húsið mitt í annarlegu ástandi og illa til klæðanna. Fékk ég leiðinlegt sár á síðuna og enn verra í hægri lófann sem er hel skítt og mjög svo óþægilegt.

Þrátt fyrir meiðslin eftir fallið þá reif ég sjálfan mig upp, og það stolt sem ég átti eftir með, og lét sem ekkert væri að. Gæti reyndar verið að ölið í líkamanum hafi deyft sársaukann og leyfi ég mér í raun að fullyrða það því daginn eftir og einnig nú 5 dögum síðar þá líður mér illa og sýking er jafnvel á næsta leyti.

Áfengi er böl og skapar vesen en áfengi er líka gleðigjafi líkt og því sem félagar mínir fengu glaðir að fylgjast með í heimboði mínu um síðustu helgi.

Þrátt fyrir bölið þá held ég að ég muni þó heimsækja ölið (vó rím-meistari) um næstu helgi enda sniðugir hlutir framundan.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 14:41:01 / losbiskit

Sæl Veriði..

Það er nú meira hvað bloggfærslu lægðin hefur verið djúp yfir mér síðustu tíðir þó svo að margt hafi á mína daga drifið. En eitthverja hluta vegna hefur það setið á hakanum að láta verða að því að rita inn hugsanir, pælingar og daglegar fréttir af sjálfum mér til ykkar "fjölmörgu" sem slysast inn á síðuna mína. En hér er ég allavega núna...

Frá því síðast bárust fregnir af mér þá hefur þetta gerst: Fluttur á stúdentagarða með skvísunni minni, bíllinn bilaði og lagaðist einkennilega af sjálfu sér mánuði síðar, ég varð árinu eldri á þessum skamma tíma, ég fór á Ísafjörð í "sumarfrí" og dvaldi þar í miklu yfirlæti spilandi golf nánast daglega, tímabilið kláraðist í utandeildinni og uppskeran dræm, þó varð ég markaðhæstur við annan mann. Ég er svo byrjaður í háskólanum aftur og hef verið edrú síðan á menningarnótt, húha =) !

Tala eins og ég sé hinn versti alki að ég hafi náð að vera edrú í meira en mánuð, en það er ég ekki, alki þ.e. en merkilegt er þetta þó að ég hafi ekki freistast til að taka þeim fjölmörgu gylliboðum sem mér berast hverja helgi..

Um að gera að verðlauna sig eins og alkarnir fyrir góðan árangur með því að detta helfeitt í það næstu helgi! :D

Margt annað auðvitað gerst en það er ekki hægt að ætla að minn steikti heili muni slíkt,þar sem ég er auðvitað orðinn árinu eldri og farinn að glíma við ýmis vandamál tengd ellinni...

Mig langar að lofa að ég skrifi eitthver sniðugheit hér inn á næstu dögum en erfitt er að gera það þegar ég man varla hvað ég heiti oft á tíðum. En ég skal reyna... ;)

Vonandi er eitthver ánægð/ur með að risinn sé vaknaður og farinn að skrifa á ný.

Atli

              


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 14:42:26 / losbiskit

Mr. Angry Mexican thingííí man!

                

Svo mikill listamaður.... Verkið er til sölu....


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 18:02:49 / losbiskit

Afmælis Afmælis jeij jeij jeij!

Litla sæta tjeeeelllingin mín á afmæli í dag föstudaginn þrettánda!

Hér er hún á góðri stundu! hohoho :D

Til hammings með Ammings kjútí! :* :* :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 10:01:47 / losbiskit

Roskilde festival 2007!

Eins og alþjóð veit þá er ég að fara í drullusvaðið sem Hróarskelda er núna eftir úrhelli síðusta daga í Danmörku. Eitthverjar frengir hef ég þó fengið af því að hitabylgja sé í vændum á svæðið og það blivar feitt!

Listinn af hljómsveitum sem mig langar að sjá á Skeldunni þetta árið er kjánlega stór, og allt öðruvísi en þegar ég fór síðast en þá sáum við félagarnir allt of lítið af efni og sinntum drykkjunni meira. Í ár mun hvort tveggja líklega verða gert á meiri skala en síðast þar sem drykkfelldur er félagi minn hann Bjarki og dregur hann mig líklega í svaðið! ;) Hoho!

Það sem mig langar að kíkja á er meðal annars: Arcade Fire, Arctic Monkeys, Muse, Red Hot Chillipeppers, The Killers, Basement Jaxx, Björk, The Brian Jonestown Massacre, Cold War Kids, The Flaming Lips, Klaxons, My Chemical Romance, Queens of the Stone Age, The Thermals, The Whitest Boy Alive, The Who, The New Young Pony Club og svo kjánalega margt meira...

Þetta verður helber geðveiki!

Svo er ég að spá í að kíkja á Bjarka til Lund fyrir hátíðina!

Getur þetta klikkað?

Atli


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 12:43:28 / losbiskit

Merkilegt nokk...

Var að glápa aðeins á sjónvarpið í gær, og kemur kannski engum á óvar að póker var á skjánum. Þetta var þáttur um heimsmeistaramótinu í póker og lýsandinn, nokkuð hress Íslendingur sem er kannski rétt yfir fimmtugt myndi ég giska á, fór á kostum.

Tveir menn voru enn að spila og annar hét Israelihashimi eða eitthvað álíka og hinn spilarinn var þettvaxinn ungur strákur og í salnum var mamma hans að fylgjast með honum, kannski líkt og mamma fylgdist alltaf með mér í boltanum þegar ég var yngri, þó hún mæti ekki lengur á leiki hjá mér.

Að þessir menn sátu við borð og voru að spila póker er kannski ekki frásögum færandi, nema fyrir þátt sinn í því að bjóða íslenska lýsinum tækifæri til að láta fordóma sína skína í sjónvarpi á Íslandi. Svona hljóðaði lýsingin:

"Þá er komið að Israelhashimi að gera og með þetta nafn þá hlýtur hann að vera júði. Hann tjekkar og þá er komið að spik feita mömmu stráknum"

Jahérna... Fyndið efni en vá svo kolrangt!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 16:53:05 / losbiskit

See You On The FLIP SIDE!

Tók þátt í fyrsta stóra pókermótinu sem haldið hefur verið fyrir opnum dyrum og auglýst sem aldrei fyrr á föstudaginn var.

Það hvarflaði þó að mér að eitthvað gruggugt myndi gerast þennan dag og viti menn svo varð úr. Það fyrsta var að ég spilaði eins og bjáni á þessu móti og datt út fyrr en ég ætlaði og kenni ég helst um svikulum spilurum í kringum mig sem kunna að gefa öðrum kúkabrún eða helúldin spil. Var ég ekki svo svekktur með þetta, fyrr en það seinna grugguga gerðist. Svekkelsið beindist að því að Lögregla Reykjavíkur réðist inn í vígi pókerspilarana með tilheyrandi látum, og missti ég af því sökum þess að vera lélegur í póker!

Ég hefði pottþétt þráast við og látið handtaka mig fyrir þátt minn í víðtækum fjárhættuspilahring. Eru nú sögusagnir um það að lögreglan hafi komið fyrir tveimur "under cover" lögreglumönnum í innsta hring sem þátttakendum í þessu spili, til að geta komist að mikilvægum upplýsingum og auðvelda verkefni þeirra að brjóta upp þessa hræðilegu starfsemi sem spilið er.

Það er nú meira sem lögreglan hefur sig fram í að brjóta niður heilbrigða skemmtun og heyrst hefur af okkar "secret agentum" innan lögreglurnar að Bingó í Vinabæ og Félagsvistin á Hrafnistu á hverjum miðvikudegi séu næstu fórnarlömbin. Hefur skilaboðum verið komið áleiðis til Hrafnistubúa og má búast við átökum þar sem göngugrindir, stafir, hækjur, gervitennur og jafnvel einstaka hjólastóll mun verða í aðalhlutverki gegn táragasi lögreglunnar.

Þeir eru nú meiru kjánarnir sem standa á bakvið þá ákvörðun að eyðileggja fullkomlega góða og jafn löglega skemmtun og t.d. Spilakassarnir, Lengjan, Bingóin, Bridskvöldin og ég get haldið endalaust áfram. Það merkilega er að Lögreglan gerði þetta víst að þeirri ákvörðun tekinni að það ætti að láta reyna á það hvort þetta sé ekki alveg örugglega ólögleg starfsemi. Að lögreglan í Reykjavík geti tekið ákvarðanir um svona inngrip á þeim forsendum er bara ekkert annað en kjánalegt. Að geta tekið sér þetta vald án þess að hafa hugmynd hvort þetta sé rétt eða rangt segir manni að þetta sé persónuleg ákvörðun tekin af einum manni sem hefur slæma mynd að Póker.

Afhverju ekki ráðast inn í stórmarkaði á höfuðborgarsvæðinu og leggja niður alla starfsemina þar og hirða allar vörur í búðinni bara vegna "hugsanlegs gruns" um að ólöglegt blátt m&m leynist í einum pokanum.

Til hamingju Lögreglan í Reykjavík, kjánar helgarinnar, farið og einbeitið ykkur að mótorhjóla ökumönnum á ofsahraða og að brjóta niður barnaklámshringi en ekki ráðast á löglega skemmtun sem póker er eingöngu vegna þess að "under cover" lögreglumönnunum gekk illa að fá nothæf spil í mótinu.

Atli


» 14 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 14:56:46 / losbiskit

Hróarskelda/Air!

Þá er það kmið á hreint, kallinn er að skella sér á Hróarskeldu 2007 í júlí!

Gat ekki gert Bjarka það að skella mér ekki með, hann hefði orðið svo sár, og svo brjálaður að hann hefði líklegast látið höggin dynja á mér og ég var ekki alveg til í það...

Fullt af ógeðslega skemmtilegum böndum vei vei vei vei vei! =)

Svo er ég að fara á Air tónleikana, held það sé 19 júní og þeir verða auðvitað mergjaðir líka! Stuð, verst samt að þeir eru á þriðjudegi en það verður samt stuð! :)

Annars má miðbærinn éta úldinn skít! Fór á föstudaginn í bæinn og þá voru fáir og engin reykingarlykt og ég var svo ánægður að vera laus við þennan vibbaskap. Svo kíkti ég á laugardeginum eftir afmælið hjá frænku minni og þá var allt troðið í bænum og þá fóru staðirnir að anga. Ég trúði engum þegar fólk var að segja að það myndi bara koma kúka/svita og táfýlulykt í staðinn fyrir reykingarlyktina en hvílíkan horbjóð var samt að finna á Barnum að ég þurfti að flýja. Reykingar já takk!

Vei Roskilde!

Atli

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 12:14:25 / losbiskit

Dánarfregn!

Alþjóð tilkynnist að kallinn fer í klippingu á föstudag! Grát! :S Þar mun líkast til lurgurinn fá að fjúka en hver veit kannski gerist eitthvað sniðugt... 

Hugmyndabankinn er núna opinn! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 22:51:07 / losbiskit

Nautsus...

Það er nú meira hvað fólk hefur flykkst inn á síðuna mína. 430 manns komnir þegar þetta er skrifað og jafnast þá á við 10 faldan mannsfjölda sem býr á Patreksfirði! :D

Hvað það er sem veldur þessari ásókn veit ég lítið um. Hvort það sé prýðilega fjörufærslan mín, eða litríki bakgrunnurinn, eða kannski mynda-linkarnir mínir. Meiri trú hef ég frekar á eitthver klikk og bang í teljara blog centrals þar sem ég hef harla verið aktívur í skrifum og í raun andstæða aktívs og þegar ég hef loks ritað eitthvað hér á síðuna þá er það yfirleitt skrifað í flýti í raun eingöngu til að setja eitthvað hingað inn og halda síðunni lifandi!

Þess vegna held ég að þetta sé merkilegasta og besta færslan mín í langan tíma, þó hún sé ekki um annað en þær 43 sálur sem búa í patreksfirði (sinnum 10)

Annars vil ég óska Íslendingum til hamingju með nýja ríkistjórn, vei nú munu nú hlutirnir gerast og breytast... Not!

Atli


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 16:31:30 / losbiskit

Fjöruferð!

Ég er búinn að vera að uppgötva það síðustu vikur hversu heppinn ég er að búa nálægt ægisíðunni og Gróttu.

Fór upp á Gróttu á Seltjarnarnesi fyrir ekki svo löngu síðan og það er æðislegur staður þegar veðrið er rólegt. Hægt að klifra í gömlu svona fiskþurkunar dóti og svo er útsýnið frábært og vitinn kúl!

Ég og Jónína fórum svo í gönguferð um hverfið í gær og enduðum á því að labba fjöruna á ægisíðunni til baka. Svo kúl að geta bara farið út í fjöru. Svo var nottla uppáhaldsveðrið mitt, enginn vindur og rigning! :D

Reyndar var einn ljótur galli á þessari ferð en það var þegar ég sá risastóra og fallega skel úr fjarska. Fór upp að henni til að eignast hana en þá var þetta bara alls ekki skel heldur svona fjólubláar/bleikar umbúðir af dömubindi! Urga Burga! :klikk: Annars er fjaran rosalega hrein! Gömlu kúkarörin eru þarna ennþá en nottla ekki í notkun og líklega sótthreinsuð til dauðans! ;)

Atli megakúl:

            

Jónína megakúl:

               

:D

Svo er Heiða systir búin að stofna bloggsíðu: heima.blog.is - Must að kíkja á það!

Atli

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 17:07:56 / losbiskit

King Atli og Patrick Swayze!

Ég var bara í sakleysi mínu á eðal pöbbnum Celtic Cross fyrir stuttu síðan að mér verður litið á dansgólfið í kjallara hússins og sé ég þar myndar mann í þvílíkum dansi að hálfa væri feikimeira en nóg.

Við nánari athugun á þessum heimsklassa dansara sá ég að þar var enginn annar en Dirty Dancing stjarnan Patrick Swayze á ferð og tók lítið fyrir það að taka danspör við íslenskar yngismeyjar.

Ég gat ekki annað en beðið stjörnuna um leyfi um að fá að smella af okkur mynd saman.

Hvað finnst ykkur um kallinn?


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 15:40:32 / losbiskit

veiiii...

Það verður svona gaman í kvöld! Vei!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9